21.11.2007 16:17:20 / gunnarg
smá grín
Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni. Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi. Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar. Andinn svaraði: " Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? " Án þess að hika sagði konan : " Ég óska friðar í Mið-austurlöndum. Sérðu þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað."
Andinn leit á kortið og hrópaði : " VVVWaaaááááá, er ekki í lagi með þig manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára.
Ég bý yfir miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! " " Ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. "
Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: " Okey, ég hef aldrei getað fundið rétta manninn, þú veist : sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr.
Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! "
Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : " Láttu mig sjá þetta fjandans kort "